
Black November −15% · 29.995 kr.
TIME Best Inventions 2025 (sérstök viðurkenning) · iF Design Award 2026 · IFA 2025 Innovation Award · Best of CES 2026
Sólarljós inniheldur bæði sýnilegt ljós og ósýnilegar bylgjulengdir, meðal annars nær-innrautt ljós. Hefðbundin innilýsing gefur frá sér lítið af þessu ljósi og margir gluggar draga úr því magni sem berst inn. Í skammdeginu njótum við lítillar dagsbirtu á Íslandi.
SunBooster er hannaður til að bæta nær-innrauðu ljósi við daglega inniveru. Tækið festist á tölvuskjáinn og beinir ljósinu að andliti og hálsi á meðan þú vinnur.
Ljósið er ósýnilegt auganu og því fylgir hvorki skær birta né áberandi hitamyndun. SunBooster kemur ekki í stað náttúrulegrar dagsbirtu, heldur gefur frá sér tiltekna bylgjulengd hennar.
SunBooster byggir á tækni sem var rannsökuð í tvíblindri klínískri rannsókn með lyfleysusamanburði sem birtist í vísindatímaritinu Biology árið 2023. Í rannsókninni tóku þátt 56 fullorðnir einstaklingar með væg svefnvandamál. Áhrif nær-innrauðs ljóss voru könnuð yfir fjögurra vikna tímabil, bæði að sumri og vetri.
Frekari óháðra rannsókna er þörf til að staðfesta áhrifin. Heimild: Giménez o.fl., Biology, 2023.
Skoða vísindarannsóknina →| Eiginleiki | Lýsing | |
|---|---|---|
| Ljóstækni | Þrjár 850 nm nær-innrauðar ljósdíóður sem lýsa í stuttum púlsum | |
| Ráðlögð fjarlægð | 30–100 cm; slekkur á sér nær en 20 cm | |
| Daglegur notkunartími | 2–4 klst. samtals, reiknaður af fjarlægðarnemanum | |
| Rafmagn | USB-C, 5 V, 4 W | |
| Ljóslíffræðilegt öryggi | IEC 62471, prófað af SGS, í undanþáguflokki (Exempt Group) | |
| Tengingar | Engin þörf á smáforriti eða þráðlausri tengingu | |
| Mál og þyngd | 83 × 62 × 56 mm, 120 g | |
| Í pakkanum | SunBooster og USB-C-snúra | |
| Ábyrgð framleiðanda | 2 ár | |
| Hönnun | Hannað af SunLED í Hollandi |
SunBooster er þróaður af hollenska fyrirtækinu SunLED, sem sérhæfir sig í nær-innrauðri ljóstækni.
Markmið fyrirtækisins er að gera þessa tegund ljóss aðgengilega í daglegu umhverfi, meðal annars á vinnustöðum og heimilum.
SunBooster er vellíðunarvara en ekki lækningatæki. Fylgdu öryggisleiðbeiningum framleiðanda og hafðu tækið að minnsta kosti 30 cm frá augunum.
Nei. Líkaminn myndar D-vítamín í húðinni fyrir áhrif UVB-geislunar frá sólinni. SunBooster gefur ekki frá sér UVB-geislun og stuðlar því ekki að myndun D-vítamíns.
SunBooster hefur verið prófað af SGS samkvæmt IEC 62471, alþjóðlega staðlinum um ljóslíffræðilegt öryggi lampa, og flokkast í undanþáguflokk (Exempt Group), sem er lægsti áhættuflokkur staðalsins. Notaðu tækið ekki nær augunum en 30 cm.
Já. Ljósinu er beint að húðinni á andliti og hálsi, svo venjuleg gleraugu og skjágleraugu skipta ekki máli.
Varla. Í mesta lagi sést daufur rauður bjarmi í ljósdíóðunum. Tækið gefur hvorki frá sér hita né hljóð.
Nei. Það þarf að skína á bera húð á andliti og hálsi.
Flestar nýlegar vefmyndavélar sía út nær-innrautt ljós. Eldri eða einfaldari myndavélar geta sýnt örlítinn litblæ; ef svo ber undir er hægt að slökkva á SunBooster á meðan fundurinn stendur yfir.
Í rannsókninni voru áhrifin metin yfir fjögurra vikna tímabil. Upplifun einstaklinga getur verið mismunandi og ekki er hægt að tryggja að allir finni fyrir breytingum.
Í rannsókninni komu ekki fram marktæk jákvæð áhrif að sumri til. Hugsanlegt er að meiri útivera og dagsbirta hafi áhrif, en frekari rannsókna er þörf.
Já. Þú getur skilað SunBooster innan 30 daga frá afhendingu, líka eftir notkun, þar sem rannsóknin stóð í fjórar vikur. Skilaðu tækinu óskemmdu í upprunalegum umbúðum og þú færð fulla endurgreiðslu.
Pantanir eru sendar innan sólarhrings og afhentar á 1–3 virkum dögum um allt land.